fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Má ekki umgangast börnin sín vegna bleiublætis

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 14. maí 2022 21:00

Fullorðinsbleia. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áströlskum manni hefur verið meinað að umgangast börnin sín vegna bleiublætis sem hann er haldinn. Fyrrum eiginkona hans, sem hann á börnin með, vissi af þessu blæti áður en þau skildu. Þegar málið var tekið fyrir hjá fjölskyldudómstóli í Ástralíu sagði hún að þetta hafi ágerst með tímanum.

Blætið sem um ræðir snýst um fullorðinsbleiur. Fyrir dómi kom fram að maðurinn hafi komið að sækja börnin í skóla eitt sinn og hafi þá verið með bleiu sem var öllum sýnileg. Sagði konan að í kjölfarið hafi hún ákveðið að fara með málið fyrir dóm.

Fjölskyldudómstóll úrskurðaði á síðasta ári að maðurinn megi ekki umgangast börnin sín. Hann áfrýjaði úrskurðinum en hann var nýlega staðfestur. Dómarinn, Hillary Hannan, sagðist ekki geta séð að maðurinn vildi í raun og veru láta af blæti sínu og tengslum við aðra sem eru haldnir sama blæti. LadBible skýrir frá þessu.

Móðirin færði þau rök fyrir dómi að óhjákvæmilegt væri að börn þeirra myndu verða fyrir áhrifum af blæti mannsins.

Föðurnum finnst hann hafa hlotið ósanngjarna meðferð og sé mismunað vegna blætisins.  Í samtali við The Daily Telegraph sagði hann niðurstöðuna vera „hræðilega“. Hann hafi alltaf stutt baráttu minnihlutahópa sem eru ofsóttir eða sæta mismunun fyrir það eitt að vera það sem þeir eru.

„Það sem ég geri heima hjá mér þegar börn eru ekki nærri er mitt einkamál. Þetta er einkamál sem skaðar ekki neinn,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Í gær

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?