Margir taka vatnsbrúsa með sér í líkamsrækt eða vinnu. Skyndilega getur undarlegt bragð farið að gera vart við sig þegar drukkið er úr honum og þá er kominn tími til að þrífa hann.
Það skiptir engu þótt það fari aldrei neitt annað en vatn í brúsann, það þýðir ekki að hann sé sjálfhreinsandi. Það þarf að þvo hann með vatni og sápu og ekki bara öðru hverju, heldur alltaf þegar búið er að nota hann.
Þetta kemur fram á norska vefmiðlinum Godt. Rætt var við Morten Enersen, tannlækni, örverufræðing og lektor við Oslóarháskóla, um þetta. Hann sagði að vatnsbrúsar, og aðrir drykkjarbrúsar, safni í sig bakteríum þegar þeir eru notaðir.
„Maður þvær bolla og glös eftir notkun. Af hverju? Vatn og sápa fjarlægja matarleifar og annað þannig að bakteríuvöxtur verði eins lítill og mögulegt er,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að einstaklingur, sem er með eðlilega bakteríuflóru, geti auðveldlega gengið um án þess að verða veikur af þeim. Það geti þó gerst á einhverjum tímapunkti, til dæmis ef hann notar brúsa sem bakteríur hafi fengið að lifa góðu lífi í.
Það er því ekkert annað að gera en taka uppþvottaburstann fram og skrúbba brúsann vel eftir hverja notkun.