Live Science skýrir frá þessu. Ummerki um líf í þessum steinum hafa þynnst á milljörðum ára og því hafa vaknað spurningar um hvort þetta væru ummerki eftir örverur eða hvort þau hefðu myndast af jarðfræðilegum orsökum.
Vísindamennirnir, sem gerðu rannsóknina, segjast hafa fundið ákveðin ummerki eftir örverur í ákveðnum lögum steinsins og séu þetta sterkar sannanir fyrir líffræðilegu ferli.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu GeoScienceWorld.
Elstu þekktu ummerkin um líf eru um 3,7 milljarða ára gömul og eru í steinum sem fundust á Grænlandi. Ekki er talið útilokað að enn eldri ummerki sé að finna í steinum frá Kanada en það hefur ekki verið staðfest.