Það er þorpið Salto de Castro, sem er í norðvesturhluta landsins, sem er falt fyrir 260.000 evrur en það svarar til tæplega 39 milljóna króna á gengi dagsins.
Það eru 44 íbúðir í bænum, hótel, kirkja, skóli, sundlaug og herbúðir. BBC skýrir frá þessu.
Þorpið var reist á sjötta áratugnum af raforkufyrirtækinu Iberduero. Þar áttu fjölskyldur starfsmanna, sem unnu við stíflugerð nærri þorpinu, að búa. Þegar þeirri framkvæmd lauk flutti fólkið á brott og frá því í lok níunda áratugarins hefur þorpið verið mannlaust.
Núverandi eigandi þorpsins keypti það í byrjun aldarinnar. Hann ætlaði að gera það að ferðamannastað en þegar fjármálakreppan skall á brast sá draumur.
Á heimasíðunni Idealista, þar sem þorpið er til sölu, er haft eftir eigandanum að hann vilji selja því hann sé borgarbúi og geti ekki séð um viðhaldið.
BBC segir að á þeirri viku sem er liðin síðan þorpið var sett á sölu hafi rúmlega 50.000 manns skoðað auglýsinguna á heimasíðu Idealista og að 300 manns hafi sýnt áhuga á að kaupa þorpið.