Norðurkóreskir fjölmiðlar, sem allir lúta stjórn einræðisstjórnarinnar, skýrðu frá þessu í dag.
Segja miðlarnir að frá 25. september til 9. október hafi herinn æft „sviðsettar æfingar með taktískum kjarnorkuvopnum“.
KCNA segir að markmiðið með æfingunum hafi verið að senda skýr skilaboð til umheimsins til að fæla önnur ríki frá því að gera árás á Norður-Kóreu. Segir fréttastofan að eldflaugunum hafi verið skotið á loft með áherslu á að þær geti hæft flugvelli og hafnir óvinanna.
„Það var sýnt fram á hversu öflugur kjarnorkuher okkar er. Hann getur hæft og eyðilagt skotmörk hvar sem er, hvenær sem er. Þrátt fyrir að óvinirnir tali um viðræður og samningaviðræður þá höfum við ekkert að ræða um og teljum enga þörf á því,“ er haft eftir einræðisherranum.