Það getur verið erfitt að takast á við þau útgjöld sem fylgja jólamánuðinum, það þarf að kaupa gjafir, mat og fleira. Jólagjafirnar eru oft stór hluti af þessum útgjöldum og það vissu Hayley og Barney.
Þau höfðu ekki úr svo miklu að spila þegar kom að því að kaupa jólagjafir handa börnunum sínum. Þau þurftu því að treysta á hugmyndaauðgi sína til að finna góða gjöf og óhætt er að segja að það hafi tekist.
Þau gáfu börnunum sínum, Daisy 8 ára og Freddie 4 ára, gjöf sem kostaði ekki krónu. Þetta var „tími“.
Þótt þetta hafi átt sér stað fyrir jólin 2019 þá var það ekki fyrr en nýlega sem sagan af gjöfinni fór á flug um netheima og um leið bréfið sem börnin fengu með upplýsingum um jólagjöfina.
Það hljómaði eitthvað á þessa leið:
„Þetta árið ákváðum við að gefa ykkur tíma að gjöf, okkar tíma, tíma sem við getum sem fjölskylda eytt saman og átt ánægjulegar stundir. Tími án truflana, engin vinna, engir símar, bara þið og við! Í þessum kassa eru 12 umslög. Í hverju er fyrir fram skipulagt og greitt fjölskyldustefnumót. Fyrsta dag hvers mánaðar opnum við eitt umslag saman og skipuleggjum fjölskyldustefnumótið okkar.“
Í samtali við Holderness East Yorkshire sagði hún að þegar hún hugsaði um hvað börnin ættu að fá í jólagjöf hafi henni fundist að þau ættu öll þau leikföng sem þau þörfnuðust og hafi því ekki haft hugmynd um hvað þau ættu að fá.
„Ég vissi hins vegar að ég myndi elska að skapa nokkrar dásamlegar minningar fyrir fjölskylduna okkar og það hefur verið frábært,“ sagði hún.