Aftonbladet skýrir frá þessu. Segist blaðið hafa heimildir fyrir að maðurinn hafi verið skotinn mörgum skotum. Blaðið segist hafa heimildir fyrir að maðurinn hafi verið á leið heim af íþróttaæfingu þegar hann var skotinn.
Talsmaður lögreglunnar sagði í nótt að ekki liggi ljóst fyrir hvort maðurinn var skotinn á bílastæðinu þar sem hann fannst eða hvort vettvangurinn sé annars staðar.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.