fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Ótrúlegur glaðningur leyndist í ruslpóstinum – 390 milljónir

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 25. janúar 2022 07:00

Laura með vinninginn. Mynd:Michigan Lottery

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruslpósthólfið okkar er ekki alltaf bara ruslpósthólf. Þangað ratar stundum tölvupóstur sem á fullt erindi við okkur en póstkerfið flokkar sem ruslpóst. Þetta getur Laura Spears, sem býr í Oakland County í Michigan í Bandaríkjunum, borið vitni um.

Þegar hún skoðaði ruslpósthólfið sitt nýlega beið hennar óvæntur glaðningur. Hún hafði keypt Mega Millions miða í lottói Michigan á gamlársdag. Hún hafði hitt á fimm réttar tölur sem tryggðu henni eina milljón dollara. Að auki var hún með bónustöluna rétta sem þrefaldaði vinningsupphæðina svo í heildina fékk hún þrjár milljónir dollara en það svarar til tæplega 390 milljóna íslenskra króna.

„Ég sá á Facebook að potturinn væri orðinn ansi hár svo ég keypti miða,“ sagði hún í samtali við starfsfólk lottósins.“ Nokkrum dögum síðar var ég að leita að ákveðnum tölvupósti og kíkti því í ruslpóstinn minn. Þá sá ég tölvupóst frá lottóinu um að ég hefði unnið. Ég trúði ekki því sem ég las svo ég fór inn á aðganginn minn hjá lottóinu til að fá þetta staðfest. Það er svo ótrúlegt að hafa unnið þrjár milljónir,“ sagði hún einnig.

Hún sótti vinninginn í síðustu viku. Spears, sem er 55 ára, sagðist ætla að fara fyrr á eftirlaun en hún hafði í hyggju og að fjölskylda hennar muni fá að njóta vinningsins með henni. Hún sagðist líka ætla að kíkja oftar í ruslpóstinn sinn. CNN skýrir frá þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum
Pressan
Í gær

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fimm ótrúleg mál – Mannránin sem gleymast aldrei

Fimm ótrúleg mál – Mannránin sem gleymast aldrei
Pressan
Fyrir 3 dögum

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur