Þessar aðgerðir eru teknar upp á sama tíma og Frakkar hefja notkun kórónupassa en handhafar slíks passa verða að sýna hann sem sönnun þess að þeir hafi verið bólusettir eða hafi smitast af kórónuveirunni ef þeir vilja fá aðgang að opinberum stöðum og viðburðum. Það dugir sem sagt ekki lengur að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku.
Í fyrstu verður þó sú undanþága í gildi að þeir sem hafa ákveðið að láta bólusetja sig á næstunni geta framvísað neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku.
Þessar aðgerðir hafa vakið upp miklar deilur í Frakklandi. Stjórnlagaráð landsins segir að þessar takmarkanir megi aðeins vara svo lengi sem þörf er á því vegna heimsfaraldursins og að ekki megi neita óbólusettum um aðgang að pólitískum viðburðum.
Yfirvöld vonast til að með þessum aðgerðum verði hægt að halda aftur af útbreiðslu faraldursins. Á síðustu sjö dögum hefur fjöldi greindra smita verið um 3.300 á hverja 100.000 íbúa. Þrátt fyrir háar smittölu er stefnt að því að slaka á þeim sóttvarnaaðgerðum sem beinast að bólusettu fólki í næsta mánuði.