Sumir elska vinnuna sína aðeins meira en aðrir. Það á við um hinn 38 ára gamla Samet Wahyudi frá eyjunni Jövu á Indónesíu. Hann eignaðist barn á dögunum með unnustu sinni, Lindu, og í framhaldinu var ráðgert að hjónaleysin myndu ganga í það heilaga.
Samet setti hins vegar það skilyrði að sonurinn ungi yrði skírður í höfuðið á vinnustað hans Statistical Information Communication Office sem myndi í grófri þýðingu útleggjast sem Skrifstofa tölfræðiupplýsingamiðlunar. Á þetta féllst Linda með semingi en öðru máli gegndi um tengdaforeldra Samet sem urðu fokvondir yfir þessum fyrirætlunum til að byrja með. Mannasættirinn Samet náði þó á endanum sannfæra tengdó um að þetta væri farsæl niðurstaða.
Í samtali við indónesíska fjölmiðla segir hinn húsbóndaholli faðir að hann hafi fengið starf á skrifstofu tölfræðiupplýsingamiðlunar í borginni Brebes árið 2003 og að vinnustaðurinn hafði strax orðið eins og annað heimili hans. Hann hafi því viljað tengja son sinn við vinnustaðinn með einhverjum hætti og þar með kom hugmyndin um nafnið.