Ingeniøren skýrir frá þessu. En Lufthansa er ekki eina flugfélagið sem er í þessari stöðu því mörg félög þurfa að gera þetta til að halda eftirsóttum leyfum sínum á fjölförnum flugvöllum.
Framkvæmdastjórn ESB fjallar nú um málið en nokkur aðildarríki sambandsins vilja að gripið verði til aðgerða vegna þessa enda er þetta kostnaðarsamt og allt annað en gott fyrir umhverfið en ESB leggur einmitt mikla áherslu á umhverfismál.
Ástæðan fyrir flugferðunum er hin svokallaða 80/20 regla sem kveður á um að ef flugfélög vilja halda lendingar- og flugtaksleyfum sínum á flugvöllum verði þau að nýta þau í 80% tilfella á hverjum fimm vikum. Ef þau gera það ekki missa þau þessi leyfi árið eftir.
Framkvæmdastjórnin felldi þessa reglu úr gildi tímabundið á síðasta ári þegar sama staða kom upp en bæði þá og nú ferðast mun færri en venjulega vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.