fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Hún vinnur við að horfa á „fullorðinsmyndir“ – „Það get ég örugglega gert“

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 28. maí 2022 22:00

Rebecca vinnur við að horfa á klám. Mynd:Bedbible

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega auglýsti Bedbible, sem er erótísk vefsíða, eftir starfsmanni til að horfa á klámmyndir og greina þær. Rebecca Dickson sem er 22 ára og frá skoska bænum Greenock fékk starfið. Starf sem margir (sérstaklega ungir menn) hefðu gjarnan viljað fá.

Bedbible skilgreinir sig sem vefsíðu „með allt um kynlíf og kynlífstæki“. Ladbible segir að verkefni Rebecca sé að gera „ítarlega“ skýrslu um stefnur og strauma í klámi og taka saman tölfræðilegar upplýsingar.

Um 90.000 umsóknir bárust um starfið en um hlutastarf er að ræða eða fimm klukkustundir á viku. Tímakaupið er sem svarar til um 2.800 íslenskra króna.

Eins og fyrr sagði þá var það Rebecca sem fékk starfið og segir hún að það hafi verið draumur sem rættist þegar hún fékk það. „Þetta er frábært. Ég er enn í áfalli. Í alvöru talað þá verður þetta ekki mikið betra en þetta,“ sagði hún.

Fyrsta verkefni hennar var að horfa á 100 vinsælustu klámmyndböndin á Pornhub. Hún átti að skrá lengd hvers myndbands, fjölda kynlífsstellinga sem voru notaðar, hvaða stellingar það voru, fjölda fullnæginga, hvaða tungumál var talað og háralit leikaranna.

Hún segist hafa horft töluvert á klám áður en hún fékk starfið og það sé því frábært að fá laun fyrir að sinna áhugamáli sínu. Hún segir að það sé þó öðruvísi að horfa á klám vegna vinnu sinnar en sem áhugamál. Til dæmis geti hún ekki spólað yfir ákveðna hluti núna eins og hún var vön að gera áður.

Hún er ánægð með starfið og segist reiðubúin til að hætta í núverandi aðalstarfi sínu hjá bílaleigu einni til að fara að horfa á klám í fullu starfi. Hún segir að Bedbible hafi sagt að „reiknað“ sé með að starf hennar verði full starf „því hún standi sig svo vel“ og segist hún meira en reiðubúin til að samþykkja tilboð um að horfa á klám í fullu starfi. „Það get ég örugglega gert,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Í gær

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump