Þetta kemur fram í ákæru á hendur konunni en málið var tekið fyrir hjá dómstól í Holstebro í gær.
Ekstra Bladet segir að saksóknari hafi sagt að maðurinn hafi fengið að halla sér á sófa í íbúð konunnar og eiginmanns hennar en hann þekkti þau.
Vegna vímuástands gat hann ekki varist því sem konan gerði og því gat hún í fyrstu fróað sér á limi hans án þess að hann veitti mótspyrnu. Síðan settist hún ofan á hann til að hafa samfarir við hann án hans samþykkis, sem sagt nauðgun. Þetta kemur fram í ákærunni.
Einnig kemur fram að eiginmaður konunnar, sem einnig er 31 árs, hafi tekið þetta allt upp á myndband og er það lykilatriðið í málinu að sögn saksóknara.
Eiginmaðurinn er einnig ákærður fyrir nauðgun vegna þess að hann tók ofbeldið upp.
Saksóknarinn sagði að málið væri óvenjulegt því það sé sjaldan sem konur séu ákærðar fyrir nauðgun.