Mirror segir að farþeginn hafi ekki haft hugmynd um hvernig ætti að fljúga flugvél þegar hann neyddist til að taka við stjórn vélarinnar þegar hún var um 100 km frá flugvellinum.
Farþeginn kallaði í gegnum talstöð og sagði að flugmaðurinn „væri óstarfhæfur“. „Flugmaðurinn minn er óstarfhæfur. Ég hef ekki hugmynd um hvernig á að fljúga vélinni,“ kallaði maðurinn.
Þegar hann var spurður hvar vélinni væri sagðist hann ekki hafa hugmynd um það annað en að hann sæi strönd Flórída fyrir framan sig.
Honum var sagt að halda vængjum vélarinnar í láréttri stöðu og fljúga meðfram ströndinni á meðan reynt væri að staðsetja hana. Hún sást síðan um 30 km frá Palm Beach.
Eftir að farþeginn hafði lent vélinni heilu og höldnu sagði flugumferðarstjóri: „Þið voruð vitni að því að farþega tókst að lenda þessari flugvél.“ Annar svaraði þá: „Vá. Frábærlega gert.“
John Nance, sérfræðingur í flugmálum, sagði í samtali við WPBF-TV að hrós flugumferðarstjóranna væri eiginlega of hógvært. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri að einhver með enga reynslu af stjórn flugvélar lendi flugvél af þessari gerð. Aðilinn um borð í flugvélinni, reynslulaus í flugi, hlustaði greinilega vel og af yfirvegun og fylgdi þeim leiðbeiningum sem honum voru gefnar. Það gerði gæfumuninn,“ sagði hann.