Oksana birti upptökuna á samfélagsmiðlum en hún dvelur nú á sjúkrahúsi í Lviv að sögn The Guardian.
Á upptökunni sést Viktor lyfta henni upp og halda á henni á meðan hann dansar með hana á milli sjúkrarúma.
Hvorugt þeirra átti von á að geta gert þetta eftir að Oksana steig á jarðsprengju í lok mars. Þá voru hún og Viktor á leið heim til sín í bæinn Lysytsjansk í austurhluta Luhansk.
„Ég náði bara að öskra á hann: „Elskan, gættu þín!“ sagði Oskana í samtali við Reuters í gær um þetta örlagaríka augnablik.
„Hann horfði á mig þegar sprengjan sprakk. Ég datt niður og lá með höfuðið á jörðinni. Það var gríðarlegur hávaði í höfði mér. Síðan sneri ég mér við og fór að rífa fötin utan af mér,“ sagði hún.
Viktor var fyrir aftan hana þegar sprengjan sprakk og slapp hann ómeiddur.
„Þegar þetta gerðist missti ég alla von. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Hún hreyfðist ekki. Ef ekki væri fyrir Oksana þá veit ég ekki hvað hefði getað gerst. Hún er svo sterk. Það leið ekki einu sinni yfir hana. Það var Oksana sem ákvað hvað við skyldum gera,“ sagði hann einnig.
Hin nýgifta Oksana hefur fengið meðferð á ýmsum sjúkrahúsum í Úkraínu síðan þetta gerðist. Fljótlega var ljóst að hún myndi missa báða fætur og fjóra fingur á vinstri höndinni.
Hún segist hafa hrapað langt niður andlega og hafi átt mjög erfitt: „Ég vildi ekki lifa. Ég vildi ekki lifa svona. Ég á tvö börn. Ég vildi ekki að þau sæju mig svona. Ég vildi ekki vera byrði fyrir fjölskyldu mína. En þökk sé þeim stuðningi sem ég hef fengið, þá hef ég sætt mig við þetta. Ég neyðist til að halda áfram að lifa. Þetta er ekki heimsendir. Ef guð lét mig lifa, þá eru það örlög mín.“
Sjö ára sonur hennar og fimm ára dóttir eru hjá afa sínum og ömmu á öruggum stað í Úkraínu.
Oksana á sér nú þann draum heitastan að komast til Þýskalands með Viktori og börnunum til að fá gervifætur og halda áfram í endurhæfingu.