En það gilda greinilega aðrar reglur í Indónesíu því samkvæmt frétt The Sun þá nefndi hinn 38 ára Samet Wahyudi son sinn eftir vinnustað sínum.
Sonurinn heitir því Statiscal Information Communication Office þegar nafn vinnustaðarins er þýtt yfir á ensku.
Wahyudi hefur starfað hjá stofnuninni í 18 ár og segir sjálfur að hún sé eins og „annað heimili“ hans og eigi skilið að vera hyllt og þá greinilega í því formi að gefa syninum nafn stofnunarinnar.
Hann getur meira að segja framvísað nafnskírteini sonarins þessu til staðfestingar segir The Sun.
En það kemur fram að til að gera lífið einfaldara þá sé drengurinn einfaldlega kallaður Dinko.