Í skýrslu sinni segja lögreglumennirnir að stúlkan hafi virst veikburða, horuð og með opin sár víða um líkamann. News4Jax skýrir frá þessu.
Hún var flutt á Wolfson barnasjúkrahúsið þar sem hún fékk viðeigandi meðferð vegna vannæringar og sáranna. Á sjúkrahúsinu sagði hún starfsfólkinu að hún hefði verið bundin og sett í handjárn og lokuð inni í skáp í 25 daga og hefði ekki verið hleypt út úr honum fyrr en fyrir sex dögum. Hún sagði að foreldrar hennar hefðu látið hana hafa fötu til að gera þarfir sínar í.
Nágranni sagði lögreglunni að þrjú önnur börn væru á heimilinu en að fimm ára stúlkan sæist sjaldan.
Í viðræðum við tvo eldri bræður stúlkunnar og eldri systur hennar kom fram að hún fengi oft að finna fyrir því frá foreldrunum og að hún væri alltaf annað hvort í herberginu sínu eða í skápnum.
Annar bróðirinn sagðist hafa gefið henni að borða fyrir nokkrum dögum því hann hafi ekki verið viss um hvort hún fengi yfirleitt neitt að borða.
Nágranninn sagði að bræðurnir hafi eiginlega verið eins og foreldrar fyrir stúlkuna og hafi séð um að búa til mat handa henni.
Alexandra og Kenneth voru handtekin og eru nú í gæsluvarðhaldi. Börnin eru nú í umsjá ættingja nema litla stúlkan en hún liggur enn á sjúkrahúsi.