Fram kemur að á síðustu tíu árum hafi aðgengi fólks að sumarfríum aukist en meirihluti lágtekju fjölskyldna hafi samt sem áður ekki efni á að fara í frí.
Rannsóknin var unnin út frá gögnum frá Eurostat, tölfræðistofnun ESB.
Fólk telst vera í hættu á að fara undir fátæktarmörk ef tekjur þess eru undir 60% af miðgildi tekna í hverju ríki. Í Grikklandi eru 88,9% fólks í þessum hópi. Í Rúmeníu eru það 86,8%.