Sprenghlægileg myndbönd af Boris Johnson, forsætisráðaherra Bretlands fara nú eins og eldur um sinu um intertnetið. Myndböndin eru tvö, en í báðum sést hann eiga í talsverðum erfiðleikum með regnhlífina sína.
Annað atvikið átti sér stað á minningarathöfn fyrir lögregluþjóna, þar sem minnsvarði var opinberaður. Það rigndi og Boris ætlaði að koma regnhlíf yfir höfuðið, en það gekk heldur betur illa líkt og sjá má á myndbandinu:
Boris Johnson struggles with an umbrella, much to the amusement of the Prince of Wales and Home Secretary Priti Patel.
The Prime Minister was attending a dedication ceremony of the UK Police Memorial at the National Memorial Arboretum in Staffordshire.#5News pic.twitter.com/dKsJ8E3ZnS
— Channel 5 News (@5_News) July 28, 2021
Hitt atvikið kom fyrir þegar Boris var í viðtali. Á meðan hann útskýrði heldur alvarlega hluti rigndi yfir hann, þrátt fyrir regnhlífina. Regnhlífin virtist hreinlega vera gangslaus.
The biggest task Boris Johnson faces today: learning how to effectively use an umbrella. pic.twitter.com/3d6KYsKtrh
— Charlie Proctor (@MonarchyUK) July 27, 2021