Austurrískur hermaður var á dögunum dæmdur í 19 mánaða fangelsi fyrir að hafa fengið sér húðflúr af hakakross á punginn. Í Austurríki er ólöglegt að vegsama nasista en hakakross var eitt tákna nasista í seinni heimsstyrjöld. DailyMail greinir frá.
Maðurinn hafði verið að drekka ásamt bróður sínum þegar þeir fengu þá frábæru hugmynd að fá sér tattú. Eftir að bróðirinn hafði flúrað hakakrossinn sendi hann mynd á félaga sína í hernum og birtu hana á netinu.
Maðurinn gat ekki útskýrt hvers vegna hann fékk sér húðflúrið en sagðist þó hafa verið í slæmum félagsskap á þessum tíma. Hann sér verulega eftir þessari ákvörðun og baðst fyrirgefningar á vanþekkingu sinni. Lögmaður mannsins hefur gefið út að þeir ætli að áfrýja dómnum.
Að sögn mannsins er húðflúrið ekki lengur sýnilegt.