Frank Towers, 44 ára karlmaður, var handtekinn á Minneapolis-St. Paul flugvellinum í Bandaríkjunum í síðustu viku fyrir tilraun til líkamsárásar. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hóta starfsmanni á flugvellinum lífláti.
Á föstudagsmorgninum í síðustu viku missti Frank stjórn á skapi sínu á innritunarsvæði flugvallarins. Hann hótaði starfsmanni lífláti og grýtti í bankaböndum í átt að honum. Lögreglan mætti þá á svæðið og sagði honum að hætta þessum látum og hafa sig í burtu.
Samkvæmt KSTP lét Frank sér þó ekki segjast og sagði að hann „þyrfti ekki að stoppa“ því „þetta væri frjálst land“. Í kjölfarið ítrekuðu lögreglumennirnir fyrirmæli sínu og sögðu Frank að hætta þegar í stað.
En Frank fór ekki eftir fyrirmælum lögreglumannanna heldur gerði hann atlögu að þeim. Það varð til þess að lögreglan dró upp rafbyssu og skaut Frank með henni. Eftir það var Frank vistaður í gæsluvarðhaldi.
Þegar upptökur úr öryggismyndavélum flugvallarins voru skoðaðar mátti sjá hvað gerðist áður en lögreglumennirnir mættu á svæðið.
Í upptökunum mátti sjá Frank kýla og skalla sjónvarpsskjái, klæða sig úr fötunum og rúnka sér á flugvellinum. Eftir það klæddi hann sig aftur í fötin, kastaði stól og fór svo til starfsmannsins sem hann hótaði lífláti.
Þetta er langt frá því að vera það fyrsta sem Frank gerist sekur um, auk þess að vera kærður fyrir brjálæðiskastið á flugvellinum þá eru þrjú mismunandi mál gegn honum í vinnslu. Þau mál eru öll vegna líkamsárása sem hann er sakaður um að hafa framið.