Að mati þeirra sem baða sig á kvöldin þá eru nokkrir af helstu kostunum við það þessir:
Húðin verður betri við það. Þegar við sofum endurnýjar húðin sig, það er að segja líkaminn losar sig við dauðar húðfrumur og býr til nýjar. Það er að sögn auðveldara fyrir líkamann að gera þetta ef húðin er hrein. Með því að fara í bað á kvöldin auðveldar þú því líkamanum þetta starf.
Húðin verður ekki eins feit. Ef þú ert ein(n) af þeim sem ert oft með fituga húð þá getur bað á kvöldin hjálpað til við að leysa þennan vanda. Bað á kvöldin dregur að sögn úr líkunum á að þú fáir bólur því þú liggur ekki í fitu og skít yfir nóttina.
Ofnæmi. Ef þú er með eitthvað ofnæmi þá getur verið snjallt að fara í bað á kvöldin. Frjókorn og annað, sem þú ert kannski með ofnæmi fyrir, getur sest í hárið og á húðina og því er gott að skola það af fyrir svefninn.
Auðveldara að sofna. Eitt af þeim góðu ráðum sem eru gefin þegar fólk á erfitt með að sofna er að fara í gott bað. Þá slakar líkaminn á og hitastig hans lækkar. Lægri líkamshiti gerir fólki oft auðveldara fyrir með að sofna og því ætti bað að kveldi til að hjálpa þér við að sofna. Mælt er með að farið sé í bað um einni og hálfri klukkustund áður en gengið er til náða.
Meira kynlíf. Það er auðvitað alltaf skemmtilegra að stunda kynlíf ef báðir (eða allir) þátttakendurnir eru hreinir. Það mun því líklega ýta undir meiri kynlífsiðkun ef annar, báðir eða allir aðilar fara í bað á kvöldin.