fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Hljóðupptökur varpa ljósi á harða valdabaráttu í Íran

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 29. apríl 2021 22:30

Mohammad Javad Zarif. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var upptöku af orðum Mohammad Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans, lekið og hefur hún vakið mikla athygli því hún varpar ljósi á harða valdabaráttu í Íran. Lengi hefur verið vitað að harðlínuöfl og hófsöm öfl hafa tekist á í landinu en upptakan varar ákveðnu ljósi á þessi átök og hversu hörð þau eru.

Á upptökunni heyrst Zarif kvarta undan því hvernig Íranski byltingarvörðurinn og Qassem Soleimani, fyrrum yfirmaður byltingarvarðarins, hafi í raun stýrt utanríkismálum þjóðarinnar og hann hafi sjálfur lítið haft að segja um stefnuna. Soleimani, sem Bandaríkjamenn réðu af dögum í Írak í janúar á síðasta ári, reyndi að sögn Zarif að koma í veg fyrir samning Írana við umheiminn um kjarnorkumál sín.

Hann segir einnig að byltingarvörðurinn hafi logið að sér dögum saman eftir að liðsmenn hans skutu úkraínska farþegaflugvél niður í Teheran á síðasta ári. 176 manns létust.

Á upptökunni staðfestir hann einnig orðróm um að byltingarvörðurinn hafi sent vopn og hermenn til Sýrlands með farþegaflugvélum Iran Air. Byltingarvörðurinn er sjálfstæður her sem starfar við hlið hefðbundins herafla landsins. Hann segir einnig að árangri í samskiptum við önnur ríki hafi oft verið „fórnað“ fyrir hernaðarlegan ávinning á jörðu niðri.

Liðsmenn Íranska byltingarvarðarins. Mynd:EPA

Ekki er vitað hver lak upptökunni sem er þriggja klukkustunda löng. Hún var send til BBC og fleiri miðla. Hún virðist vera hluti af myndbandsviðtali, sem var tekið í febrúar, sem var hluti af sagnfræðiverkefni um Hassan Rouhani, forseta, og átti fyrst að birta upptökuna eftir mörg ár. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði að upptakan væri „klippt til eftir hentugleika“. Hvað sem því líður er ljóst að hún er eldfim pólitískt séð og þá sérstaklega vegna þess að Íran reynir nú að ná samningum við Bandaríkin um að taka kjarnorkusamninginn upp á nýjan leik. Þess utan eru forsetakosningar í Íran í júní.

Ekki er ljóst hvaða áhrif upptakan hefur á stöðu Zarif en hann hefur sagt að hann ætli ekki að bjóða sig fram til forseta. Harðlínumenn í landinu treysta honum ekki og margir þeirra hafa krafist afsagnar hans í kjölfar lekans. Hann er almennt talinn tilheyra hófsömum hluta valdamanna í landinu. Hann hefur mikið verið gagnrýndur í fjölmiðlum, sem byltingarvörðurinn stýrir og eru á móti öllum samningaviðræðum við Vesturlönd, fyrir samninginn um kjarnorkumál Írans.

Á upptökunni segir Zarif einnig að Soleimani hafi farið til Moskvu 2015 til að vinna með Rússum að því að „eyðileggja árangur okkar“ og á þar við kjarnorkusamninginn. Hann nefnir einnig mál frá 2016 þegar byltingarvörðurinn hafði 10 bandaríska sjóliða í haldi um hríð. Hann segir að Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sé sérstaklega virkur í málum sem þessum því það þjóni ekki hagsmunum Rússa að Íran eigi í góðum samskiptum við Vesturlönd. „Varðandi fjandskapinn við Vesturlönd þá höfum við alltaf þörf fyrir Rússland og Kína. Það er engin samkeppni,“ heyrist hann segja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Í gær

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá
Pressan
Í gær

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tunglið fær sitt eigið tímabelti

Tunglið fær sitt eigið tímabelti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er ástæðan fyrir að þú átt ekki að nota símann þegar þú ert á klósettinu

Þetta er ástæðan fyrir að þú átt ekki að nota símann þegar þú ert á klósettinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rúllaði Braga í bankann og vildi taka út pening – Óhugnanlegt atvik endaði með handtöku

Rúllaði Braga í bankann og vildi taka út pening – Óhugnanlegt atvik endaði með handtöku