The Guardian skýrir frá þessu. Bandaríkin eru stærsti kaffimarkaður heims en sérfræðingar telja að salan í kaffi- og teverslunum muni dragast saman um tæplega 20% á árinu. Kaffisala hefur aukist þar í landi á hverju ári undanfarin ár.
Í Kína hefur markaðurinn einnig fundið fyrir heimsfaraldrinum og þar er reiknað með að vöxturinn í kaffisölu verði aðeins 1,6% á þessu ári en á síðast ári var hann 40%.
Í Suður-Evrópu og Suðaustur-Asíu hefur kaffisala dregist mikið saman. Á öðrum ársfjórðungi dróst innflutningur á kaffi, til þeirra landa sem flytja inn kaffi, saman um sex prósent á heimsvísu miðað við sama tíma í fyrra. Verð á kaffibaunum hækkaði umtalsvert í febrúar og mars þegar heimsfaraldurinn skall á.