Jarðskjálfti mældist á 7.5 á Richterkvarða í Mexíkó í dag. Skjálftinn fannst bæði í suðurhluta og í miðju landinu. Í höfuðborginni, Mexíkóborg gerði skjálftinn vart við sig, en þar eiga byggingar að hafa hrist og hræddir íbúar flúðu út á götur. Frá þessu greinir The Guardian.
Engar tilkynningar um miklar skemmdir hafa borist segja dagblöð í Mexíkó. Bæjarstjóri Mexíkóborgar tók í sama streng.
Skjálfti sem átti sér stað árið 2017 sem varð meira en 300 manns að bana er enn minnisstæður í hugum íbúa.