Hann sagði að faraldurinn muni ná hámarki eftir tvær vikur, þá verði dánartíðnin í hámarki. AFP skýrir frá þessu.
Samkvæmt samantekt Johns Hopkins háskólans létust 518 af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum á síðasta sólarhring. Aldrei fyrr hafa svo margir látist af völdum veirunnar þar í landi á einum sólarhring. Fyrra metið var frá deginum áður en þá létust 453. Í heildina hafa um 2.500 látist af völdum veirunnar í Bandaríkjunum fram að þessu. Greind smit eru um 140.000.
„Ef Bandaríkin geta haldið dauðsföllunum á milli 100.000 og 200.000 miðað við hugsanlegar 2,2 milljónir þýðir það að við höfum staðið okkur vel.“
Sagði Trump í gær. Hann tilkynnti einnig að leiðbeiningar til almennings um að gæta þess að koma ekki of nærri öðru fólki verði framlengdar til loka apríl. Þar með hefur Trump fallið frá fyrirætlunum sínum um að opna Bandaríkin á nýjan leik fyrir páska.