Karlmaður sem vildi koma nágranna sínum til bjargar eftir að hafa heyrt neyðaróp hans varð honum óvart að bana í furðulegu slysi í vikunni. Atvikið átti sér stað á miðvikudag í bænum Adams í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Þannig er mál með vexti að nágranni mannsins, hinn 27 ára gamli Joshua Jadusingh, átti tvo pitbull-hunda. Eitthvað varð til þess að þeir réðust á hann og heyrði maðurinn neyðarópin í Joshua sem tókst með naumindum að koma sér undan og loka sig af inni í herbergi.
Nágranni Joshua brást skjótt við, ruddist inn vopnaður lásboga og skaut að öðrum hundinum. Ekki vildi betur til en svo að örin strauk hnakkadrambið á hundinum, fór í gegnum hurðina og í Joshua sem lést af sárum sínum.
Lögregla hefur gefið það út að maðurinn verði ekki ákærður vegna málsins. Lásboginn var skráður og því ekkert sem bannaði notkun á honum í aðstæðum sem þessum.
Andrea Harrington segir að mennirnir hafi þekkst vel og verið góðir vinir. Þá vissi hann að barn var á heimili Joshua en það slapp ómeitt frá þessum ósköpum. „Þetta voru mjög erfiðar aðstæður og ég held að hann hafi reynt að gera sitt besta,“ segir saksóknarinn Andrea Harrington.
Hundarnir, sem höfðu verið til vandræða og voru yfirleitt lokaðir í sitthvoru búrinu, voru skotnir eftir að þeir reyndu að ráðast á lögreglumenn sem komu á vettvang.