Masoumeh Ebteker, varaforseti Írans, er í hópi þeirra 254 landsmanna sem greinst hafa með COVET-19 kórónaveiruna. Ebteker er 59 ára gömul en hún hefur gegnt embættinu frá því sumarið 2017.
Þetta kemur fram í frétt breska blaðsins The Independent.
Nánari upplýsingar um líðan varaforsetans liggja ekki fyrir og þá hefur ekki verið greint frá því hvar hún er talin hafa smitast. Tuttugu og sex hafa látist í landinu af völdum veirunnar.