fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Bjartsýnir frumkvöðlar – Byrjaðir að selja miða í tímaferðalög

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 15. nóvember 2020 19:30

Skjáskot úr kvikmyndinni Aftur til framtíðar þar sem tímaferðalög koma við sögu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er hægt að kaupa sér miða í tímaferðalög í framtíðinni. Það eru bjartsýnir frumkvöðlar hjá ferða- og tæknifyrirtækinu Klook sem eru farnir að selja slíkar ferðir. Þeir byrjuðu á því eftir að ný rannsókn vísindamanna við háskólann í Queensland í Ástralíu sýndi að tímaferðalög eru möguleg án þess að við þurfum að óttast þversagnir á borð við „Afa þversögnina“.

„Afaþversögnin“ gengur út á að ef einhver ferðast aftur í tímann og verður afa sínum að bana þá sé vafamál hvort viðkomandi muni fæðast. Þessu hafa áströlsku vísindamennirnir nú svarað og segja að tímalínan myndi breyta sér í kjölfarið á morðinu svo allt myndi verða eins og það á að vera í nútímanum og því þurfi ekki að hafa áhyggjur.

Hjá Klook var þessum niðurstöðum tekið fagnandi og ákvað fyrirtækið að bjóða 100 miða til sölu á 1 pund í tímaferðalag í framtíðinni ef og þegar slík ferðalög verða möguleg.

Simon Llanos, markaðsstjóri Klook í Bandaríkjunum og Evrópu, segir að tímaferðalög geti orðið möguleg á hverri stundu og fyrirtækið hafi viljað bregðast hratt við og vera tilbúið þegar slík ferðalög verða möguleg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orrustan um Bretland

Orrustan um Bretland
Pressan
Fyrir 3 dögum

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku