fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Nýjar vendingar í máli blaðakonunnar sem tísti um Kobe Bryant

Ritstjórn Pressunnar
Miðvikudaginn 29. janúar 2020 10:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska blaðakonan Felicia Sonmez, sem kom sér í heimsfréttirnar eftir umdeilt tíst í kjölfar dauða körfuboltastjörnunnar Kobe Bryant, er komin aftur til starfa hjá Washington Post.

Örfáum klukkustundum eftir dauða Kobe Bryant í þyrluslysi á sunnudagskvöld tísti Felicia tengli á frétt Daily Beast um nauðgunarmál Bryant frá árinu 2003.

Kobe Bryant var sakaður um nauðgun árið 2003 af nítján ára stúlku í Colorado. Stúlkan sem um ræðir var starfsmaður á hóteli og átti hin meinta nauðgun sér stað áður en Kobe gekkst undir aðgerð á hné. Kobe var handtekinn og ákærður vegna málsins og mætti fyrir dóm.

Sjálfur neitaði hann sakargiftum og var málið látið niður falla þegar stúlkan neitaði að bera vitni. Kobe játaði þó að hafa verið ótrúr eiginkonu sinni og þá er hann sagður hafa komist að samkomulagi við stúlkuna um að leysa málið án aðkomu dómstóla. Upplýsingar um hvað fólst í þessu samkomulagi voru þó aldrei gerðar opinberar.

Óhætt er að segja að tíst Feliciu hafi vakið athygli og fékk hún yfir sig holskeflu af gagnrýni, en auk þess var henni hótað ofbeldi og lífláti. Í kjölfarið var ákveðið að víkja henni frá störfum á fréttastofu Washington Post meðan skoðað var hvort hún hefði brotið reglur blaðsins með tístinu.

Nú liggur niðurstaða fyrir og segir Tracy Grant, ritstjóri Washington Post, að þó tíst Feliciu hafi verið óheppilegt hvað tímasetningu varðar hafi hún ekki brotið neinar reglur. Um 400 starfsmenn Washington Post höfðu áður skrifað undir áskorun þess efnis að Felicia fengi að koma aftur til starfa. Sögðu þeir að miðillinn ætti að sýna henni stuðning í ljósi alvarlegra hótana sem hún hafði fengið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?