Hún segir að það að hún hafi skýrt opinberlega frá þessu hafi gert henni enn erfiðara fyrir við að finna hina einu sönnu ást.
„Áður fyrr var ég ekki viss um hvenær væri rétti tíminn til að segja þetta. Átti ég að kynnast honum betur fyrst eða átti ég bara að varpa sprengjunni.“
Sagði hún í samtalinu við Hart.
Íþróttaferill Jones er glæsilegur en hún er einn fárra íþróttamanna sem hafa keppt á Sumar- og Vetrarólympíuleikum. Hún keppti í grindahlaupi 2008 og 2012 og var hluti af bandaríska bobsleðaliðinu á Vetrarleikunum 2014.
Hún náði ekki að vinna til verðlauna á Ólympíuleikunum en hefur unnið til gullverðlauna á HM í báðum íþróttunum. Hún freistar þess nú að komast á Ólympíuleikana í Tókýó.
Í viðtalinu við Hart sagði hún að ein af ástæðunum fyrir að hún hafi ekki náð að vinna til verðlauna á Ólympíuleikunum væri kannski að hún hafi ekki stundað kynlíf.
„Það hjálpar kvenkyns frjálsíþróttakonum alltaf að stunda kynlíf. Það er gott fyrir hormónana.“
Í eldra viðtali sagði hún að „hún hafi verið særð hjartasári margoft“ vegna þeirrar afstöðu sinnar að vilja ekki stunda kynlíf fyrir hjónaband og að líklegast sé hún enn einhleyp vegna þess að „strákar nenna ekki að bíða eftir stelpum“.
Hún tjáði sig einnig eitt sinn um hversu stórt „afrek“ það er að sleppa því að stunda kynlíf.
„Það er það erfiðasta sem ég hef gert í lífinu. Erfiðara en að æfa fyrir Ólympíuleikana. Að vera hrein mey er erfiðara en að leggja stund á háskólanám.“