fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Birti þessa mynd af jólagjöfinni og missti vinnuna í kjölfarið

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 17. janúar 2020 22:00

Umrædd mynd. Mynd:Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá 2013 starfaði Hussien Mehaidli, 27 ára Kanadamaður, sem yfirmaður hjá fyrirtækinu Fastebal sem selur ýmsa vélarhluti og annað til iðnaðarfyrirtækja. Öll þessi ár hafði hann fengið stóra gjafakörfu fulla af ýmsu góðgæti í jólagjöf frá fyrirtækinu. En fyrir síðustu jól var gjöfin svolítið öðruvísi. Þá fengu starfsmennirnir eina flösku af grillsósu eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Þetta fannst Mehaidli ansi aum jólagjöf og lái honum hver sem vill.

„Mér fannst ég hafa gefið þessu fyrirtæki svo mikið og fannst sem mér væri sýnd óvirðing þegar ég fékk grillsósu í jólagjöf.“

Sagði hann í samtali við CTV News.

Hann var svo ósáttur við gjöfina að hann ákvað að birta mynd af henni á Twitter og skrifa um óánægju sína. Hann gerði það undir leyninafni. En daginn eftir hringdi yfirmaður hans í hann og kallaði hann þá ekki Hussien heldur Minipat sem er notandanafnið á Twitteraðganginum sem hann notaði til að gagnrýna jólagjöfina. Þá áttaði hann sig á að hann hafði eitt sinn deilt mynd á þeim aðgangi sem var tekin við borðið hans í vinunni. Af þeim sökum komst upp um hann.

Tíu dögum eftir að hann skrifaði færsluna var hann boðaður á fund og sagt upp störfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?