fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Ert þú að leita að góðum megrunarkúr? Þá skaltu ekki velja þennan segir næringarfræðingur

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 16. janúar 2020 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ketó mataræðið hefur á síðustu árum náð miklum vinsældum meðal þeirra sem vilja losna við aukakílóin, en það er ýmislegt sem bendir til þess að mataræðið sé ekki eins gott fyrir þig og þú kannski heldur.

Átralski næringarfræðingurinn, Robbie Clark heldur þessu fram og segir að mataræðið sé aftur á móti slæmt fyrir þig. News.com.au greinir frá þessu.

Robbis Clark sagði í viðtali við news.com.au að ketó mataræðið felist í stuttu máli í því að þú borðar mjög lítið af kolvetnum. Án kolvetna brennir líkaminn nánast eingöngu fitu í stað sykurs. Litið er á ketó mataræðið sem takmarkandi mataræði, gróft korn, belgjurtir, grænmeti með sterkju og ávextir er meðal þess sem ekki má borða.

Þegar maður útilokar margt af því sem telst til fjölbreytts mataræðis, hefur það afleiðingar. Maður fær einfaldlega ekki öll þau næringarefni sem maður þarf á að halda.

Robbie Clark er ekki sá eini sem er á þessari skoðun. Tímaritið US News & World Report, sem birtir á hverju ári lista yfir bestu og verstu kúrana, segir kúrinn þann versta þeim af 35 sem voru til umfjöllunar. Ein af ástæðum þess að hann þótti verstur, auk skorts á mikilvægum næringarefnum, var, að honum fylgja of margar reglur. Auk þess þess þykir hann ekki umhverfisvænn. Það eina sem tímaritið fann jákvætt við ketó mataræðið var að maður léttist ótrúlega hratt. Auk þess segir James Kuhn, annar ástralskur næringarfræðingur, að hann geti verið góður fyrir þá sem eiga erfitt með að stýra matarlist sinni. Ástæða þess er að maður neytir minna magns matar, sem fyllir vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum
Pressan
Í gær

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átta ára fangelsi fyrir að stela bíl – 89 ára blind kona í framsætinu – Myndband

Átta ára fangelsi fyrir að stela bíl – 89 ára blind kona í framsætinu – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“