CNN Business skýrir frá þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO þá getur kórónaveiran lifað í nokkrar klukkstundir á yfirborðsflötum. Af þessum sökum eru hús, lyftuhnappar, handföng og aðrir staðir sem fólk snertir oft sótthreinsaðir reglulega. Nú er röðin komin að peningum eins og áður sagði. Bönkum hefur verið skipað að sótthreinsa alla peninga með útfjólubláum geislum og háum hita og geyma þá síðan í eina til tvær vikur áður en þeir eru settir aftur í umferð.
Til að bæta upp fyrir þá peninga sem verða teknir úr umferð ætlar seðlabankinn að prenta nýja seðla. Ekki fer sögum af hvað verður gert við mynt.