Áhafnarmeðlimum tókst að yfirbuga Haines og halda þar til vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum í Essex en þangað var henni beint eftir að Haines reyndi að opna dyrnar. Tvær orustuþotur voru sendar til móts við vélina og fylgdu henni inn til lendingar. Vélin var frá Jet2 flugfélaginu. Haines var handtekin þegar vélin var lent.
Sky segir að fyrir dómi hafi komið fram að Haines hafi „misst minnið og muni ekki hvað gerðist“ um borð í flugvélinni. Hún hafði drukkið áfengi ofan í lyf sem hún tók.
Haines játaði brot sitt fyrir dómi. Verjandi hennar sagði að hún „væri ung kona sem glími við ýmis vandamál“. Hann taldi það þó að það mætti telja henni til tekna að hún hafi tekið meiri þátt í starfi AA samtakanna í kjölfar atburðarins.