Breska blaðið Independent greinir frá þessu.
Þar er haft eftir Mikhaeil Mishustin, nýjum forsætisráðherra Rússlands, að skrifað hafi verið undir tilskipun þess efnis að loka landamærunum og hún hafi þegar tekið gildi.
Landamæri Rússlands og Kína eru um 4.000 kílómetra löng. Auk þess hafa rússnesk stjórnvöld tilkynnt að frá og með deginum í dag verður hætt að gefa út nýjar vegabréfsáritanir til kínverskra ríkisborgara. Um er að ræða tímabundna ráðstöfun. Í morgun tilkynnti Iberia, eitt stærsta flugfélag Spánar, að félagið hefði nú aflýst reglubundnum áætlunarferðum milli Madrídar og Sjanghæ vegna veirunnar. Félagið fer þrisvar í viku á milli borganna.
Sífellt fleiri staðfest tilfelli veirunnar hafa komið upp og í morgun staðfestu yfirvöld í Víetnam að þrjú ný tilfelli hefðu greinst þar í landi. Allir sjúklingarnir höfðu dvalið í borginni Wuhan í Kína.
Þá segir í frétt Independent að Ástralar hafi ákveðið að senda þegna sína sem dvalið hafa í Kína í einangrun á Jólaeyju (e. Christmas Island) – afskekkta eyju á Indlandshafi. Gera áætlanir ráð fyrir að fólk þurfi að dvelja þar í fjórtán daga.