Samkvæmt nýrri skýrslu SÞ þarf ein milljón manna bráða mataraðstoð vegna uppskerubrestsins. Norður-Kórea hefur lengi glímt við matarskort og skömmtunarkerfi ríkisins virkar ekki eins og skyldi. Ríkisfjölmiðlar landsins, sem eru einu fjölmiðlar þess, hafa um langa hríð varað íbúana við yfirvofandi matarskorti vegna þurrka.
Auk þurrka hefur afríska svínapestin herjað á svínastofninn í landinu og er það ekki til að bæta ástandið.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa heitið að gefa nágrönnum sínum í norðri 50.000 tonn af hrísgrjónum í gegnum matarhjálp SÞ. Það hefur þó dregist að koma grjónunum til skila vegna harðra viðbragða norður-kóreskra stjórnvalda við heræfingum Bandaríkjanna og Suður-Kóreu og kyrrstöðunnar í kjarnorkuafvopnunarviðræðunum við Bandaríkin.