Ef til harkalegra deilna og átaka kemur á milli NATO og Rússlands getur það endað með kjarnorkustríði. Sem betur fer stöndum við ekki á brún kjarnorkustríðs eins og er og verðum við að vona að stjórnmálamenn búi yfir nægilegri skynsemi til að ganga ekki svo langt í deilum sínum. En nýlega var Science & Global Security hermilíkan Princeton háskólans í Bandaríkjunum látið líkja eftir kjarnorkustríði á milli NATO og Rússlands.
Niðurstöðurnar eru óhugnanlegar. Hermingin, sem er nefnd „Áætlun A“ er lýsing á hvernig sérfræðingar háskólans telja að kjarnorkustríð myndi þróast og hverjar afleiðingar þess yrðu.
Hermingin hefst með að Rússland skýtur kjarnorkusprengju, sem á að vera aðvörun til NATO, frá herstöð í Kalíngrad. NATO svarar að bragði með taktískri árás á rússneskt landsvæði og síðan fer allt úr böndunum.
Báðir aðilar skjóta síðan fjölda kjarnorkusprengja frá ýmsum herstöðvum. Sérfræðingar Princeton segja að 34 milljónir manna muni deyja á nokkrum klukkustundum.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig hermilíkanið setur átökin upp.