Tilgangurinn með gjörningnum er að vekja athygli á býsna sláandi tölfræði í Tyrklandi um heimilisofbeldi gegn konum. Þannig tákna skópörin þann fjölda kvenna sem létust á síðasta ári vegna ofbeldis frá maka sínum.
Vahit segir sjálfur að hann hafi sótt innblástur á samfélagsmiðla þar sem margir hafa rætt um ofbeldi í nánum samböndum. Vahit segist meðvitaður um að umræða sem þessi falli fljótt í gleymskunnar dá – því miður – og þess vegna hafi hann ákveðið að reyna að vekja athygli á málinu með áberandi hætti.
Byggingin þar sem sjá má skóna er í miðri Istanbúl og munu þeir hanga uppi í sex mánuði.