Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá bandarísku mannfjöldastofnuninni Census Bureau. Einnig kemur fram í skýrslunni að í fyrsta skipti í áratug fjölgaði fólki sem ekki er með sjúkratryggingu. Í heildina voru tekjur heimilanna nánast þær sömu og árið á undan.
Meðaltekjur kvenna, sem voru í fullu starfi, voru 5,8% hærri á síðasta ári en 2007. Hjá körlum eru tekjurnar nær óbreyttar. Konur hafa að jafnaði mun lægri laun en karlar á bandarískum vinnumarkaði eða um 82% af launum þeirra.