Nágrannar mannsins segjast hafa séð manninn, sem ekki er búið að nafngreina, fyrir utan húsið sitt skömmu áður en það sprakk. Yfirvöld á svæðinu sögðust hafa fundið hann í grjótmulningnum eftir sprengjuna. Það er Pittsburgh Post-Gazette sem greinir frá þessu.
Í frétt frá KDKA um málið er greint frá því að bréf hafi fundist í jeppa sem maðurinn átti, talið er að bréfin séu sjálfsmorðsbréf. Farsími mannsins fannst á bílrúðu jeppans. „Sem er frekar skrýtið og uggandi“ sagði Robert Payne, lögreglustjórinn á svæðinu en hann tjáði sig um málið við KDKA.
Donna Antolovich, nágranni mannsins, segir að henni hafi brugðið við sprenginuna en þegar hún fór út sá hún húsið standa í ljósum logum. Annar nágranni segir að húsið hafi verið jafnað við jörðu þegar hann fór út en þá höfðu liðið um ein og hálf mínúta frá sprengingunni.
Lögreglan á svæðinu segir að hún hafi áður komið í þetta hús vegna vandræða á heimilinu í tengslum við geðsjúkdóma. Lögregluna grunar að maðurinn hafi opnað fyrir gasið, kveikt eld og það hafi orsakað sprenginguna.
Donna Antolovich sagði í samtali við WTAE að hún hafi verið í molum.
„Ég hef verið hér allt mitt líf. Ég hef þekkt fólkið í húsinu allt mitt líf. Dóttir hans var að gifta sig í dag og hann átti að vera í brúðkaupinu.“