Miðað við nýjar kínverskar hagtölur er áhrifanna farið að gæta þar í landi. Í ágúst var útflutningurinn til Bandaríkjanan 16 prósentum minni en í ágúst á síðasta ári. Á sama tíma minnkaði útflutningur frá Bandaríkjunum til Kína um 22,5 prósent.
Kínverjar selja enn meira til Bandaríkjanna en Bandaríkin til Kína og er munurinn töluverður.
Samdráttur í innflutningi á bandarískum vörum til Kína er talinn merki um veikleika í kínverskum efnahag. Þess er vænst að kínversk stjórnvöld muni fljótlega kynna ný áform til að örva hagkerfið þar í landi.
Reiknað er með að seðlabanki landsins lækki stýrivexti á næstunni og í síðustu viku slakaði hann á kröfum til banka landsins um hversu mikið fé þeir þurfa að eiga handbært. Vonast er til að þetta fái bankana til að lána meira fé út.