fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Sturluð samsæriskenning um kápu Melaniu Trump

Ritstjórn Pressunnar
Föstudaginn 13. september 2019 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samsæriskenningasmiðir eru duglegir að koma auga á ótrúlegustu hluti og búa til kenningar – sem á köflum eru langsóttar. Melanie Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur verið nokkuð á milli tannanna á netverjum vegna myndar sem Donald Trump birti á Twitter.

Á myndinni má sjá forsetahjónin fyrir framan minnisvarða sem var komið upp í Pennsylvaníu vegna árásanna 11. september 2001.

Netverjar tóku eftir undarlegu mynstri aftan á kápu Melaniu úr smiðju fatahönnuðarins Hervé Pierre. Töldu netverjar að mynstrið minnti á atburðina í New York þegar flugvél var flogið á Tvíburaturnana og með því að klæðast þessari kápu væri Melania að senda einhvers konar skilaboð.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að umrædd mynd hafi verið tekin á minningarathöfn árið 2018, en myndin fór þó ekki á flug á netinu fyrr en í þessari viku – einu ári síðar.

Fataval Melaniu Trump hefur lengi vakið athygli en hún þykir með sérstakan smekk. Sumir vilja meina að hún sendi ákveðin skilaboð með fatavali sínu þegar hún er í opinberum erindagjörðum með eiginmanni sínum.

Stephanie Grisham, talskona Hvíta hússins, sagði við fjölmiðla að allar vangaveltur um kápuna væru fáránlegar. Engin dulin skilaboð væru að finna í mynstrinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?