fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Demókratar á krossgötum

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 2. febrúar 2019 21:00

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin þaulreynda þingkona Nancy Pelosi er nýr leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Demókratar náðu góðum meirihluta í deildinni í kosningunum í haust og var Pelosi kjörin leiðtogi þeirra í byrjun árs þegar leið að því að þingið tæki til starfa. Hún er stundum nefnd skákmeistarinn þar sem hún þykir slóttugur stjórnmálamaður sem getur lesið vel í stöðuna og áttað sig á hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún á enda mikla reynslu í stjórnmálum að baki því hún hefur setið á þingi áratugum saman, en hún er 78 ára. En þrátt fyrir að leiðtogar flokkanna á þingi fái yfirleitt mikla athygli þá er það önnur þingkona Demókrata sem fær meiri athygli þessar vikurnar en Pelosi. Það er hin unga stjarna Alexandria Ocasio-Cortes frá New York eða dansstjarnan eins og sumir hafa nefnt hana. Svo virðist sem Repúblikönum standi mest ógn af henni því þeir hafa ráðist harkalega á hana á undanförnum vikum en hún hefur staðið allar atlögur þeirra af sér og virðist ekkert bíta á hana.

Pelosi og Donald Trump forseti hafa tekist á undanfarið vegna fjárlagadeilu fulltrúadeildarinnar, en Trump hefur þvertekið fyrir að samþykkja fjárlög nema milljörðum dollara verði varið til að reisa múr á landamærunum við Mexíkó. Þetta taka Demókratar ekki í mál. Hafa stálin stinn mæst þegar Pelosi og Trump takast á. Sumir stjórnmálaskýrendur í Washington hafa sótt fyrirmynd í heim kvikmyndanna þegar þeir lýsa þessum átökum og einn ráðgjafi Trump lýsti átökum Pelosi og Trump sem hér væri King Kong að etja kappi við Godzilla. Pelosi er í fararbroddi í sókn Demókrata gegn Trump en auk þess hefur hún sýnt flokksfélögum sínum hver það er sem ræður för. Þegar atkvæði voru greidd um hver skyldi vera leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni greiddu nokkrir Demókratar atkvæði gegn henni og þeir hafa nú fengið að kenna á því. Einn þeirra, Kathleen Rice, fékk til dæmis ekki sæti í hinni valdamiklu dómsmálanefnd deildarinnar þrátt fyrir að röðin væri komin að henni. Politico segir að Pelosi hafi náð fram hefndum gegn einum uppreisnarmanna úr röðum Demókrata.

Fæddist inn í flokkinn

Það má segja að Pelosi hafi fæðst inn í stjórnmál og Demókrataflokkinn. Faðir hennar var borgarstjóri í Baltimore. Hún hefur verið áberandi og áhrifamikil í flokknum frá því á miðjum áttunda áratugnum. Hún var fyrsta konan sem var kjörin leiðtogi fulltrúadeildarinnar, en því embætti gegndi hún frá 2007 til 2011 og aftur nú. Mikil reynsla hennar og góður skilningur á valdataflinu í bandarískum stjórnmálum mun væntanlega koma henni til góða í þeirri baráttu sem hún á fyrir höndum gegn Trump.

Það var Pelosi sem var ein helsta driffjöðrin að baki því að koma heilbrigðisfrumvarpi Obama, hinu svokallaða Obamacare, í gegnum þingið og hún hefur orð á sér fyrir að vera sannkallaður stórmeistari í valdataflinu á þinginu.

„Hún veit hvernig á að telja atkvæði. Hún veit hvernig á að sannfæra fólk vinsamlega, en líka hvernig á að gera það harkalega. Þetta eru hæfileikar sem leiðtogi þarf að hafa. Hún er óárennileg og menn skyldu ekki vanmeta hana,“ sagði meðal annars í tímaritinu The Atlantic á síðasta ári.

 

Alexandria Ocasio-Cortez
Vonarstjarna Demókrata.

Vilja endurnýjun

Demókrataflokkurinn þráir endurnýjun og Pelosi er frekar skammtímalausn en framtíðar leiðtogi enda vel við aldur. Hún mun því ekki vera í fararbroddi hvað varðar að sýna hvert flokkurinn stefnir. Ljóst er að mikil undiralda er í flokknum um að nú sé komið að kynslóðaskiptum og eru konur og minnihlutahópar í mikilli sókn innan hans. Þessi þrá eftir nýjum og yngri andlitum hefur örugglega ekki minnkað við að Pelosi tók við leiðtogastöðunni og þá staðreynd að næstu menn á eftir henni í valdastiganum eru þeir Steny Hoyer og James Clyburn, en þeir eru 79 og 78 ára.

Ein helsta orkusprauta flokksins og ein stærsta vonarstjarna hans þessi misserin er fyrrnefnd Alexandria Ocasio-Corters sem var kjörin á þing í kjördæmi í New York sem nær meðal annars yfir Bronx og Queens. Hún vann yfirburðasigur í sínu kjördæmi, fékk um 80 prósent atkvæða. Hún er ættuð frá Púertó Ríkó og hefur valdið fjaðrafoki á Capitol Hill. Hún er ný á sjónarsviðinu en hún komst fyrst í kastljósið í júní á síðasta ári þegar hún sigraði Joe Crowley, þungavigtarmann, í forvali Demókrata. Hún vekur mikla athygli hvar sem hún kemur sem og á samfélagsmiðlum en hún er dugleg við að nota þá. Hún er með 2,5 milljónir fylgjenda á Twitter, fleiri en Pelosi, en á þó langt í land með að ná Trump sem er með 57 milljónir fylgjenda. Óvinir hennar fylgjast grannt með henni og hafa reynt að gera henni skráveifur, en án árangurs enn sem komið er. Nýlega birtu Repúblikanar myndband af henni, frá háskólaárum hennar, þar sem hún dansar. Með myndbandinu skrifuðu Repúblikanar:

„Sjáið hvernig nýjasti uppáhaldskommúnisti Bandaríkjanna skemmtir sér.“

En áhrifin urðu allt önnur en lagt var upp með og sú niðurlæging sem þetta átti að verða fyrir Ocasio-Cortez varð að sigri hennar. Hún svaraði Repúblikönum nýlega með myndbandi á Twitter þar sem hún sést taka nokkur létt dansspor fyrir framan skrifstofu sína.

Demókratískur sósíalisti

Ocasio-Cortez lýsir sjálfri sér sem „demókratískum sósíalista“ en það er vægast sagt óvenjulegt að heyra þetta í bandarískum stjórnmálum. Hún hefur þegar sýnt að hún lætur ekki nægja að lýsa sjálfri sem slíkri heldur hefur hún viðrað hugmyndir um 70 prósenta skatt á þá efnamestu, sjúkratryggingakerfi að evrópskri fyrirmynd og mikla aukningu í framleiðslu á umhverfisvænni orku. Þetta fer illa í marga Repúblikana sem hafa látið hörð orð falla um hana. En margir Bandaríkjamenn virðast styðja hugmyndir hennar. Könnun, sem Hill-HarrisX gerði, sýnir að 59 prósent aðspurðra eru jákvæð í garð hugmynda hennar um hátekjuskatt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu ekki að sofna yfir sjónvarpinu

Þess vegna áttu ekki að sofna yfir sjónvarpinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar