fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Pressan

Fékk draumagjöfina frá unnustanum – Hún kom upp um framhjáhaldið

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 16. desember 2019 07:00

Jane Slater.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Jane Slater fékk Fitbit úr í jólagjöf frá unnusta sínum varð hún mjög ánægð því hér var hin fullkomna gjöf komin hélt hún. En jólagjöfin varð síðan til þess að sambandinu lauk því það kom upp um framhjáhald.

Skötuhjúin samstilltu úrin sín og notendareikninga svo þau gætu hvatt hvort annað við líkamsrækt. En unnustinn reyndist vera heldur æfingaglaður en þó ekki í hefðbundnum líkamsræktarskilningi því æfingar hans fólust í að stunda kynlíf með annarri konu.

Daily Mirror skýrir frá þessu. Segir miðillinn að morgun einn hafi unnustinn ekki verið heima. Þegar Jane leit á úrið sitt þennan morgun sá hún að eitthvað var ekki eins og það átti að vera.

„Fyrrum unnusti minn gaf mér eitt sinn Fitbit í jólagjöf. Ég elskaði það. Við samstilltum notendareikninga okkar og hvöttum hvort annað áfram. Ég hataði það ekki fyrr en hann var ekki til staðar klukkan fjögur að morgni en um leið var líkamsáreynsla hans í toppi í appinu.“

Skrifaði hún á Twitter. Í annarri færslu sagði hún að hann hefði ekki látið sig hverfa til að stunda erfiða þolþjálfun í líkamsræktarstöðinni en ekki er erfitt að lesa á milli línanna hvað hann var að gera.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Í gær

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða
Pressan
Í gær

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum