Mæðgin voru fyrr í vikunni úrskurðuð í gæsluvarð í Danmörku grunuð um nauðgun. Maðurinn, sem er 43 ára, er grunaður um að hafa nauðgað eiginkonu sinni með aðstoð móður sinnar sem er 67 ára. Hún er talin hafa haldið tengdadóttur sinni fastri á meðan sonurinn kom vilja sínum fram.
TV2 skýrir frá þessu. Ekki liggur enn fyrir hvort um einstakt tilfelli er að ræða eða hvort konan hafi oftar sætt ofbeldi af hálfu mæðginanna.