Þetta er einfaldlega lítil nuddpottur eða eitthvað álíka fyrir eistun. Þetta er það nýjast í heimi fáránlegra og algjörlega óþarfra uppfinninga. Það er frumkvöðullinn Pride Smith sem á heiðurinn af þessu.
Karlarnir láta punginn síga ofan í þennan litla nuddpott sem býr til litlar og þægilegar loftbólur sem leika við punginn að því er segir í kynningu á tækinu. Á meðan er limurinn látinn hvíla á púða.
Testicuzzi segir að þetta sé frábært tæki fyrir einhleypa karlmenn sem fara tómhentir heim af lífinu með þunga byrði á milli fótanna sem og fyrir karla sem hjóla mikið eða stunda útreiðar.