„Það er hætta á glæpum.“
Skrifaði Löfven.
Áður en hann skrifaði þetta hafði Göran Dahlström, flokksbróðir hans og bæjarfulltrúi í Katrineholm, sagt í samtali við Expressen að hann, sem sjónarvottur að því sem er að gerast, væri ekki í vafa um hverjir ættu hlut að máli. Hann gagnrýndi Löfven fyrir að segja ekki skýrt að vandinn tengdur glæpagengjunum tengist hinum mikla straumi flóttamanna til Svíþjóðar.
„Það er á samfélagsmiðlum, hjá áberandi vinstrimönnum og hjá jafnaðarmönnum ákveðin tilhneiging til að telja að það sem ég og flokkurinn í Katrineholm stöndum fyrir sé rasískt.“
Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterne, skrifaði á Facebook að flokkur hans bæri einnig ábyrgð á þeirri innflytjendastefnu sem hefur verið við lýði í Svíþjóð en nú verði Löfven að axla ábyrgð og horfast í augu við raunveruleikann.
„Það er jú augljóst að glæpagengin, skotárásirnar og morðin tengjast alltof miklum fjölda innflytjenda og lélegri aðlögun þeirra að samfélaginu sterklega.“
Skrifaði hann.