Williams segist hafa keypt sér Impossible Whopper, sem er kjötlaus hamborgari, í bílalúgu hjá Burger King í Atlanta og hafi hann verið grillaður á sama grilli og hamborgarar úr kjöti. Hann telur að margir veitingastaðir keðjunnar geri viðskiptavinum ekki nægilega ljóst að kjötlausir hamborgarar séu grillaðir á sama grilli og venjulegir hamborgarar.
Talsmenn Burger King hafa ekki viljað tjá sig um málið. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að viðskiptavinir geti beðið um að fá kjötlausa borgara grillaða sér. Impossible Whopper er síðan lýst sem „100 prósent Whopper, 0 prósent kjöt“.
Fyrirtækið Impossible Foods, sem framleiðir borgarana, segir að þeir séu hugsaðir fyrir þá sem vilja innbyrða minna af dýraprótíni en sé ekki sérstaklega beint að grænmetisætum.