Nú síðast fannst búnt á mánudaginn og var það fjórða búntið sem fannst á þessu ári. Hugsanlegt er að fleiri búnt hafi verið skilin eftir og hafi ekki verið skilað inn til lögreglunnar.
Sky hefur eftir talsmanni lögreglunnar að peningabúntin hafi alltaf verið skilin eftir á stöðum þar sem þau sáust vel, til dæmis á gangstéttum. Það hafi síðan verið hinir ýmsu heiðvirðu borgarar sem fundu þau og skiluðu til lögreglunnar. Hann sagði ekkert vitað um hver eða hverjir eru að verki og hvað liggi að baki þessari gjafmildi en lögreglan vilji gjarnan komast til botns í málinu.